Fjarátak
06.12.2006 11:36:09 / nr40

Byrjuð á nýjun tug.

Jæja loksins, það var vigtun hjá mér í gær eftir  fjögra vikna hlé.  -400 gr. 89,6 kg er staðan.  Nokkuð sátt þar sem ég var búin að vera erlendis og gerði ekki meiri kröfur til mín en að halda sjó. Þar er að styttast í 25 kg. markið, get ekki beðið.  Er búin að vera að dúlla við fjöldkyldunna baka smákökur og svo leiðis.  Það hefur ekki áhrif á mig þar sem ég er löngu búin að komast að því að sykur er eitthvað sem ég get ekki borðað, verð bara veik af honum.  Ætla að láta þetta duga í dag.

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 21:17:51 / nr40

Vigtunn í dag.

90.000 kg. sagði vigtinn, nýr tugur eða ekki ég er ekki viss, annas er ég ekki ósátt viða það 23 kg. kvödd.

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 15:51:40 / nr40

Vigtun á morgun

Á morgun er vigtun hjá, ég er að vonast eftir að sjá nýjan tug á vigtinni, en það  kemur í ljós.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 21:26:57 / nr40

Betra seint en aldrei.

Þar sem ég hef haft svo mikið að gera síðustu daga, hef ég ekki bloggað lengi lengi. Það var vigtun hjá mér á þriðjudaginn var, og vinkonan sagði -1.2 kg. eða 91,8 kg. og 21.2 kg. horfin eða kvödd, svo að það er alltaf að saxast á þyngdinna, ekki mjög leiðinlegt.

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 11:55:19 / nr40

20 kg. múrinn fallinn.

Ólei ólei ólei. Vigtin sagði 93 kg. í morgun 1,4 kg. síðastu 2 vikur, þar með eru 20 kg. kvödd.:lol:  Ekki hefði ég trúað þessu í haust þegar ég ákvað að skoða  DDV umsíðustu áramót.  Ég svíf á hamingjuskýi.;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 11:47:59 / nr40

Haust.

Það er greinilega komið haust hér í sveitinni.  Nú er tími til að gera upp sín mál.  Herða sig í að bæta matarræðið, njóta hausts grænmetis og berja.  Gerði um daginn ágætis hlaup úr hrútaberjum. Ég sauð berinn í svolítlu vatni, setti þau í þunt lereft og lét síga af þeim yfir nótt,  Mældi saftinna sauð ásamt Gulu Melatin setti svo sætuefni saman við.  Alveg snyld með osti. 

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 10:55:52 / nr40

Vigtun í morgun.

Ekki nema 400 gr. niður sem sagt 94.4 kg, ég átti von á betri tölum en hvað um það reyni að gera betur næst. Ég veit að það fer að verða erfiðara og erfiðara að saxa á kílóinn. Síðan ég byrjaði í janúar hef ég alveg sloppið við að bæta á mig semsagt alltaf aðeins niður. ég er mjög ánægð með það.

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 10:18:21 / nr40

Fór í berjamó í gær.

Þegar ég var búin í vinnuni í gær fór ég að tína hrútaber.  Namm þau eru svo góð.  Í kvöld ærla ég að gera hlaup úr þeim og nota sætuefni í staðinn fyrir sykur.  Það verður gaman að sjá hvernig útkoman verður.

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 10:41:50 / nr40

Kvödd 400gr.

Vigtun í dag 400 gr. niður og nýjar tölur á vigt 94,8 kg.  Get ekki beðið eftir að komast í 93 kg. því að þá verða farin 20 kg. á  síðan í janúar byrjun .  Það verður ekki leiðinlegt:P

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 09:48:31 / nr40

Meira líf þessari síðu

Var að ákveða að gera þessa síðu virkari.  Vantar að setja fleirri tengla hjá mér endilega látið mig vita ef ég má setja ykkur á vefinn hjá mér.  Vigtun hjá mér á morgun vonast til að ná 400-600 gr. niður, en sjáum til.;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 15:44:33 / nr40

Er að komast í gírinn (vonandi)

Í næstu viku eða réttara sagt á þriðjudaginn er vigtunadagur hjá mér. Ég trúi ekki öðru en að ég fái ágæta vigtun.  Ég ætla að segja frá einni reynslusögu af mér og fataskápnum mínum .  Þar er búin að hanga síðan fyrir síðustu aldarmót svo fín dragt sem ég hef ekki tímt að henda, og hvað haldið þið í morgun prófaði ég að máta hana og haldið þið ekki að ég hafi komist í buxurnar og alles.:haha:  Ekki leiðinleg tilfinning:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 16:07:34 / nr40

Dagur fyrir mig.

Fór í klippingu og litun í morgun, og á eftir það í litun á augnabrúnum og augnhárum.  Eftir það fór ég í göngutúr. hef ekki farið í skipulagðan göngutúr síðan í apríl.  Við erum tvær kellur sem ætlum að taka upp þráðinn og drífa okkur að labba í hádeginnu.  Á svona dögum kemur sér vel að vera með frjálsan vinnutíma.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 09:24:02 / nr40

Hálfnuð

Hálfnuð, það er eins og ég finni fyrir því að ég sé að byrja að renna niður síðari helming á átakinnu.  Farinn 0,6 kg.  frá síðustu vigtun og 17,8 kg. alls 17,2 kg í takmarkið.  Nú er bara að taka á og klára.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 10:22:19 / nr40

Vigtun á morgun

Á morgun er vigtun hjá mér.  Ég á ekki von á góðu, þar sem ég hef ekki verið að standa mig síðustu vikur.  En nú er bara að byrja nýja viku á harðari aðgerðum og drífa sig.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 11:43:24 / nr40

Vigtun 01.08.06

Vigtun var 1.ágúst hjá mér 1 kg farið 17.2 kg. síðan um áramót. Setti takmarkið á 35 kg. á 18 mán. vantar aðeins 300 gr. til að vera hálfnuð. Þetta gengur vonum framar hjá mér, veit að ég fer ekki 100% eftir DVV. er samt að breita mataræðinnu til langframa.  Vona að þeir sem kíkja hér inn gangi vel.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3